Ester Sveinbjarnardóttir miðill heldur tveggja daga helgarnámskeið í rúnalestri.


Markmið námskeiðs er að kenna fólki að spá í Fuþark (rúnir 24 stafir + auðrún) með því að nota tengingar við norræna goðafræði.


Farið verður yfir það hvað hver og ein rún táknar og hvernig er hægt að tengja þær við spyrjandann með leiðsagnakorti. Rúnunum er kastað á kortið og svo lesið úr því. Í samvinnu við nemendur gerum við leiðsagnakort fyrir hvern og einn á námskeiðinu og æfum okkur í að spá með rúnunum.


Ekki spurning að hér er hægt að fá svör við ýmsum brennandi spurningum eins og „Um hvað reiddust goðin, þá hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?“ við upphaf Reykjaneselda.

Tímasetningar:
Laugardagur 24.september:
10:00-15:00
Sunnudagur 25.september:
10:00-15:00

Staðsetning:
Dugguvogur 10, 2.hæð


Verð snemmskráning (til 15.sept)
16.000
Almennt verð (frá 16.sept)
22.000


Skráning í síma 615-7789